Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Afrekssjóð HSV. Samkvæmt reglugerð Afrekssjóðs HSV er markmið sjóðsins að styrkja unga og efnilega íþróttamenn með því að gera eins árs samning við viðkomandi (8. grein). En einnig er heimilt að úthluta einstaka styrkjum til þeirra íþróttamanna sem ekki falla undir skilyrði til samnings (9. grein).

3. grein

Eingöngu iðkendur aðildarfélaga HSV, sem stunda íþróttir sem viðurkenndar eru af Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands (ÍSÍ), geta sótt um styrk úr sjóðnum.

8. grein

Meginmarkmið sjóðsins er að styrkja unga og efnilega íþróttamenn sem líklegir eru til að verða afreksmenn í framtíðinni. Sjóðurinn skal ná því markmiði með því að gera eins árs samning við viðkomandi.

9. grein

Heimilt er að úthluta úr Afrekssjóðnum einu sinni á ári til þeirra íþróttamanna sem ekki falla undir skilyrði til langtímasamnings.

Reglur afrekssjóðs HSV

 

Umsóknarferlið er eins hvort sem sótt er um að gera samning eða fá einstaka styrki, umsækjandi velur í ferlinu hvoru hann sækist eftir. Umsækjandi sem óskar eftir samningi en fær ekki mun sjálfkrafa færast yfir í hóp þeirra sem sækja um einstaka styrki.

Umsóknarferlið fer fram í gengum heimasíðu HSV líkt og verið hefur. Slóðin inn á ferlið er hér: SÆKJA UM

 

Umsóknarfrestur er til og með 31. janúar 2026.

Nánar

Veist þú um ósérhlífinn einstakling sem hefur gefið mikið af tíma sínum í sjálfboðavinnu í íþróttastarfi og verið öðrum innblástur og hvatning?

Sendu inn tilnefningu fyrir 5. desember á https://isi.is/fraedsla/ithrottaeldhugi-2025

Verðlaunin "Íþróttaeldhugi ársins" eru í boði Lottó.

Nánar

HSV sendir bikarmeisturum Vestra innilegar hamingjuóskir með titilinn. Það er einstakt að sjá hvernig íþróttir geta tengt samfélagið saman. 

Nánar

Ársþing HSV á Suðureyri 22. maí 2025

Ársþing HSV 2025 var haldið fimmtudaginn 22. maí sl. og fór það fram í félagsheimilinu á Suðureyri. Sigurður Jón Hreinsson formaður setti þingið í tuttugasta og fimmta skiptið. Marinó Hákonarson var kosinn fyrsti þingforseti og Birna Hannesdóttir annar þingforseti. Gildir þingfulltrúar voru 31 talsins og þátttakendur í heild um 40 manns.

Daníel Jakobsson, fulltrúi frá framkvæmdastjórn ÍSÍ og Guðmunda Ólafsdóttir, fulltrúi frá stjórn UMFÍ ávörpuðu þingið og fluttu kveðjur frá stjórnum ÍSÍ og UMFÍ. Þá veitti Guðmunda Svövu Rán Valgeirsdóttur starfsmerki UMFÍ fyrir störf sín fyrir Stefni á Suðureyri um árabil.

Á þinginu var farið yfir hefðbundin fundarstörf, skýrslu stjórnar, afgreiðslu reikninga og fjárhagsáætlunar, og afgreiðslu tillaga sem voru 13 talsins. Meðal annars var ákveðið að búa til starfshóp um endurskoðun laga HSV og munu Ásgerður Þorleifsdóttir, Guðfinna Hreiðarsdóttir og Marinó Hákonarson skipa þann hóp. Þingið þótti með lengra móti en það hófst kl. 17 og lauk um kl. 22.30.

Uppstillingarnefnd hafði starfað í aðdraganda þingsins og var nokkuð um framboð í stjórn. Kosið var í formannssætið og hlaut Sigurður Gunnar Þorsteinsson meirihluta atkvæða. Magnús Þór Bjarnason og Hafsteinn Már Andersen voru á síðasta þingi kosnir til tveggja ára og sitja því áfram í stjórn. Uppstillingarnefnd lagði til þau Kristinn Ísak Arnarsson og Guðbjörgu Ebbu Högnadóttur í aðalstjórn til tveggja ára og í varastjórn þau Heiðrúnu Tryggvadóttur, Höllu Signýju Kristjánsdóttur og Árna Freyr Elíasson. Tillögur uppstillingarnefndar voru samþykktar með lófataki.

Stjórn HSV er þá þannig skipuð næsta árið:
Sigurður Gunnar Þorsteinsson – formaður
Hafsteinn Már Andersen
Magnús Þór Bjarnason
Kristinn Ísak Arnarsson
Guðbjörg Ebba Högnadóttir
Varastjórn:
Halla Signý Kristjánsdóttir
Heiðrún Tryggvadóttir
Árni Freyr Elíasson

Fráfarandi formanni og stjórn HSV er jafnframt þakkað fyrir sín störf á liðnu ári.

Tveir einstaklingar hlutu heiðursviðurkenningar HSV. Einar Halldórsson fékk silfurmerki HSV fyrir ómetanlegt framlag hans til Harðar og íþróttahreyfingarinnar í heild, og Halldór Karl Valsson hlaut silfurmerki HSV fyrir hönd Vestra og störf sín fyrir ýmis íþróttafélög um árabil.

Nánar
Suðureyri við Súgandafjörð. mynd/westfjords.is
Suðureyri við Súgandafjörð. mynd/westfjords.is

25. Héraðsþings HSV verður haldið fimmtudaginn 22. maí nk.  

Þingið hefst kl. 17:00. og verður haldið í Félagsheimilinu á Suðureyri.

Fyrir liggur að breytingar verða á stjórn sambandsins. Kjósa þarf inn tvo nýja aðalmenn í stjórn auk þriggja varamanna.  Þeir sem eru áhugasamir um að koma í stjórn HSV mega hafa samband með tölvupósti í hsv@hsv.is til að fá frekari upplýsingar eða heyra í Antoni Helga, tengilið uppstillingarnefndar í síma 845 3151.

Ársskýrsla HSV er kominn á heimasíðu HSV, en í henni má finna býsna margt um íþróttalíf á starfssvæði HSV.

Nánar