Við hvetjum alla til að mæta á leikinn og fylla húsið og mynda brjálaða stemningu. Skiptir miklu máli fyrir strákana að fá hjálp frá stuðningsmönnum til að hjálpa þeim yfir síðasta hjallann.
Ýmsir skotleikir og annað sem kemur á óvart verður á á leiknum og nú er ekkert annað að gera en að mæta og hvetja strákana. Nánar
Geta allir íþróttamenn sótt um styrk í sjóðinn svo framlega sem þeir séu aðilar innan HSV og uppfylli þau skilyrði sem eru í 7.grein laga afreksmannasjóðsins.
7. gr.
„Stjórn sjóðsins getur veitt styrk ef viðkomandi uppfyllir eitthvert eftirtalinna skilyrða:
Ef hann keppir á eða hefur möguleika á þátttöku á Ólympíu-, Heims-, Evrópu- eða Norðurlandameistaramótum.
Ef hann er valinn í landslið. Ef hann er framarlega í íþróttagrein sinni á landsvísu eða hefur sýnt mjög góðan árangur og er líklegur til að komast í hóp bestu íþróttamanna landsins í íþróttagrein sinni. Skal þá miðað við styrkleikaflokkun sérsambanda (sé hún til)".
Hægt er að sjá reglugerð sjóðsins inn á heimasíðu HSV.
Umsóknarfrestur er til 7. mars 2010
Allar nánari upplýsingar veitir framkvæmdarstjóri HSV Kristján Þór Kristjánsson í síma: 861-4668 eða í tölvupósti: hsv@hsv.is
NánarLeikurinn hefst laugardaginn 30.janúar og fer skráning fram á heimasíðu tippleiksins www.tippleikur.is/hsv og einnig er hægt að skrá sig í gegnum netfang tippleiksins getraunir@hsv.is .
Þess má geta að með því að taka þátt í tippleik HSV og tippa hjá Íslenskum getraunum styrkir þú öll íþróttarfélögin í Ísafjarðarbæ í einu. Tippnúmer aðildarfélaga HSV er nr 400
Í kjöri til íþróttamanns Ísafjarðarbæjar voru eftirfarandi íþróttafólk. Við hjá HSV erum gríðalega stolt af þessu frábæra íþróttafólki og óskum þeim öllum til hamingju með frábæran árangur á síðasta ári og hlökkum til að fylgjast með því í framtíðinni.
Anna María Stefánsdóttir Sundfélagið Vestri
Anton Helgi Guðjónsson Golfklúbbur Ísafjarðar
Baldur Geir Gunnarsson Knattspyrnufélagið Hörður, handknattleiksdeild
Bylgja Dröfn Magnúsdóttir Hestamannafélagið Hending
Emil Pálsson Boltafélag Ísafjarðar
Guðmundur Valdimarsson Skotíþróttafélag Ísafjarðarbæjar
Pance Iliewski Körfuknattleiksfélag Ísafjarðar
Ragney Líf Stefánsdóttir Íþróttafélagið Ívar
Silja Rán Guðmundsdóttir Skíðafélag Ísfirðinga
Nánar
Ísafjarðarbær hefur endurnýjað verkefnasamning við Héraðssamband Vestfirðinga. Samningurinn felur í sér að HSV tekur að sér skilgreind verkefni á vegum bæjarfélagsins. Samningurinn er mjög mikilvægur fyrir íþrótta og æskulýsstarfsemina í bænum og er markmiðið með samningnum er að renna enn styrkari stoðum undir íþrótta- og æskulýðsstarfsemi á vegum HSV. Verkefnin sem héraðssambandinu eru falin eru af ýmsum toga svo sem þrif á fjörum, þrif eftir áramót, umsjón með ýmsum verkefnum á Skíðaviku, umsjón með knattspyrnusvæði, umsjón með golfvöllum, vinna við 17. júní og fleira.