Willum afhendir Skíðafélagi Ísfirðinga gæðavottunina Fyrirmyndarfélag ÍSÍ.
Willum afhendir Skíðafélagi Ísfirðinga gæðavottunina Fyrirmyndarfélag ÍSÍ.
1 af 2

26. ársþing HSV fór fram þann 28. maí sl. í félagsheimilinu á Þingeyri. Sigurður Gunnar Þorsteinsson, formaður HSV, setti þingið. Páll Janus Þórðarson var kosinn þingforseti og voru þátttakendur á þinginu tæplega 30 talsins.

Willum Þór Þórsson, forseti ÍSÍ, og Guðný Stefanía Stefánsdóttir, stjórnarmaður UMFÍ, ávörpuðu þingið og hlaut Skíðafélag Ísfirðinga gæðavottunina Fyrirmyndarfélag ÍSÍ. 

Fyrir þinginu lágu tillögur m.a. um lagabreytingar, um reglur um skiptingu styrkja til aðildafélaga innan HSV, um kjör íþróttamanns Ísafjarðarbæjar og um æfinga og keppnisaðstöðu Hendingar. Tillögurnar má finna á heimasíðu HSV undir "Þinggögn".

Breytingartillögu stjórnar á lögum HSV var lítillega breytt og samþykkt, en breytingarnar sneru að allflestum greinum laganna. Tillaga að reglum um skiptingu styrkja til aðildafélaga innan HSV var samþykkt óbreytt.
Samþykkt var að vísa tillögu vegna kjörs Íþróttamanns Ísafjarðarbæjar til stjórnar HSV, sem vinnur hana áfram.
Þá var tillaga samþykkt um að endurvekja samtal við Ísafjarðarbæ um aðstöðumál Hestamannafélagsins Hendingar með það að markmiði að gera félaginu kleift að byggja upp öflugt starf innan félagsins.

Ný stjórn var kosin á þinginu. Guðbjörg Ebba Högnadóttir og Kristinn Ísak Arnarson sitja áfram en þau voru kosin í aðalstjórn til tveggja ára á ársþingi 2025. Úr stjórn gengu Sigurður Gunnar Þorsteinsson, Magnús Þór Bjarnason, Halla Signý Kristjánsdóttir, Heiðrún Tryggvadóttir og Árni Elíasson. 

Sigríður Gísladóttir er nýkjörinn formaður HSV og voru tvö kosin í aðalstjórn til tveggja ára, þau Pálína Ingibjörg Jónmundsdóttir og Þráinn Ágúst Arnaldsson. Svala Sif Sigurgeirsdóttir, Grétar Örn Eiríksson og Hákon Dagur Guðjónsson voru kosin í varastjórn.

Stjórn HSV er þannig skipuð:

Sigríður Gísladóttir – formaður

Guðbjörg Ebba Högnadóttir

Kristinn Ísak Arnarsson

Pálína Ingibjörg Jónmundsdóttir

Þráinn Ágúst Arnaldsson

Varastjórn:

 

Grétar Örn Eiríksson

Hákon Dagur Guðjónsson

Svala Sif Sigurgeirsdóttir