Á ársþingi HSV sem haldið var þann 28. maí sl. hlutu þeir Sigurður Jón Hreinsson og Gísli Jón Hjaltason silfurmerki HSV.
SIGURÐUR JÓN HREINSSON
Sigurður Jón Hreinsson hefur um árabil verið virkur þátttakandi íþróttastarfi í Ísafjarðarbæ. Hann hefur verið öflugur í störfum sínum fyrir Blakdeild Vestra og þar á undan Blakfélagið Skell. Hann á að baki langa stjórnarsetu í blakinu og hefur verið formaður stóran hluta þess tíma. Sigurður hefur af elju og ósérhlífni sinnt flestum þeim störfum sem starfsemin krefst og sömuleiðis látið að sér kveða á keppnisvellinum. Hann sat um tíma í stjórn Blaksambands Íslands og Héraðssambands Vestfirðinga, þar sem hann gegndi embætti formanns. Sigurður var í undirbúningshópnum sem vann að stofnun íþróttafélagsins Vestra og var kosinn í aðalstjórn félagsins á stofnfundinum 16. janúar 2016. Átti hann þar sæti til ársins 2020 þegar hann tók við formennsku í blakdeildinni að nýju.
Sigurður Jón Hreinsson hefur verið lykilmaður í uppbyggingu Íþróttafélagsins Vestra og unnið mikið og óeigingjarnt starf í þágu félagsins. Að sama skapi er það hverju samfélagi dýrmætt að hafa innan sinna raða einstaklinga sem með sjálfboðastarfi sínu gera íbúum kleift að sækja fjölbreytt og faglegt íþróttastarf í héraði. Sigurður Jón Hreinsson er einn þessara einstaklinga og framlag hans til íþróttamála ómetanlegt og til fyrirmyndar.
GÍSLI JÓN HJALTASON
Gísli Jón Hjaltason hefur verið virkur þátttakandi íþróttastarfi í Ísafjarðarbæ um árabil. Hann var formaður knattspyrnufélagsins BÍ/Bolungarvík síðustu árin áður en félagið gekk inn í Vestra og sat í undirbúningshópnum sem vann að því að sameina íþróttafélög á svæðinu í eitt stórt fjölgreinafélag sem leiddi til stofnunar Íþróttafélagsins Vestra 16. janúar 2016. Á stofnfundinum var Gísli Jón kosinn í aðalstjórn félagsins þar sem hann hefur gegnt stjórnarstörfum fram á þennan dag. Gísli Jón hefur alla tíð látið sér annt um íþróttastarf á svæðinu og lagt sitt af mörkum til að það fái vaxið og dafnað. Fyrir íþróttahreyfinguna er hann mikilvægur liðsmaður og fyrirmynd í vinnusemi og samfélagslegri ábyrgð.
