Haukur Valtýsson formaður UMFÍ, Kristín Þorsteinsdóttir heimsmethafi, Auður Inga Þorsteinsdóttir framkvæmdastjóri UMFÍ
Haukur Valtýsson formaður UMFÍ, Kristín Þorsteinsdóttir heimsmethafi, Auður Inga Þorsteinsdóttir framkvæmdastjóri UMFÍ
1 af 2

Kristín Þorsteinsdóttir fékk hlýjar móttökur þegar hún kom heim til Ísafjarðar með gullin sín eftir keppni á sundmóti á Ítalíu. Haldið var hóf henni til heiðurs í Stjórnsýsluhúsinu þar sem forsvarsmenn bæjarins, ættingjar og velunnarar tóku á móti henni. Meðal annars afhenti Guðný Stefanía Stefnásdóttir Kristínu styrk frá Afreksjóði HSV upp á 200.000 krónur og Auður Inga Þorsteinsdóttir framkvæmdastjóri UMFÍ og Haukur Valtýsson formaður UMFÍ heldu stutt ávarp og færðu Krstínu blóm. Í lokin var boðið upp á veitingar.