Frá leikjanámskeiðinu sumarið 2019
Frá leikjanámskeiðinu sumarið 2019

HSV býður upp á íþrótta- og leikjanámskeið fyrir þau börn sem eru að ljúka 1.-4. bekk í grunnskóla, fædd árin 2010-2013. Til þess að koma til móts við iðkendur og fjölskyldur þeirra vegna Covid-samkomubannsins hefur tímabilið verið lengt og verðið lækkað frá því sem var í fyrra.

Námskeiðin verða á eftirfarandi dögum:

               9.-12. júní → Verð 4000 krónur (4 dagar).

               15.-19. júní → Verð 4000 krónur (4 dagar).

               22.-26. júní → Verð 5000 krónur (5 dagar).

               29. júní - 3. júlí → Verð 5000 krónur (5 dagar).

Hægt er að velja Skráning iðkenda hér efst á síðunni eða fylgja þessum tengli https://hsv.felog.is/ til að skrá þátttakendur. Skrá þarf iðkendur á allar þær vikur sem taka á þátt í. Dagskrá hverrar viku er mismunandi.

Skráningu lýkur kl. 13:00 á föstudeginum fyrir námskeiðið sem hefst n.k. mánudag. Þar sem skipta þarf þátttakendum upp í minni hópa er nauðsynlegt að allar skráningar séu komnar inn í kerfið á réttum tíma. Gætið að réttum netföngum þar sem dagskrá vikunnar og mikilvægar upplýsingar eru sendar með tölvupósti á foreldra/forráðamenn áður en námskeiðið hefst.

Námskeiðin eru alla virka daga frá kl. 9-12 og er mæting við Íþróttahúsið á Torfnesi. Krakkarnir geta fengið vistun frá kl. 8:30 án skipulagðrar dagskrár. Umsjón með námskeiðunum hafa Bjarney Gunnarsdóttir, Heiðar Birnir Þorleifsson og Árni Ívarsson. Leikjanámskeiðin verða með fjölbreyttu sniði, farið verður í leiki, fjöruferðir, hjólaferðir, fjallgöngur, sund, ýmsar íþróttagreinar prófaðar og margt fleira. Nesti verður borðað um miðjan morgun og koma allir með hollt og gott nesti að heiman.

Rétt er að taka fram að öll börn eru velkomin á íþrótta- og leikjanámskeið HSV, búseta á starfssvæði HSV er ekki skilyrði. Nánari upplýsingar veitir Bjarney Gunnarsdóttir í síma 696-3984 eða í gegnum netfangið ithrottaskoli@hsv.is