Ársþing HSV verður haldið í félagsheimilinu á Þingeyri fimmtudaginn 28. maí, kl 17:00.

Dagskrá:

1. Þingsetning
2. Kosning fyrsta og annars þingforseta
3. Kosning fyrsta og annars þingritara
4. Kosning þriggja manna kjörbréfanefndar
5. Skýrsla stjórnar lögð fram
6. Ársreikningar sambandsins lagðir fram, undirritaðir af kjörnum skoðunarmönnum og
stjórn
7. Ávörp gesta
8. Álit kjörbréfanefndar
9. Staðfesting á aðild nýrra félaga
10. Umræður um skýrslu stjórnar
11. Umræður og atkvæðagreiðsla um reikninga
12. Skipað í nefndir til starfa á þinginu
      a. Kjörnefnd og aðrar nefndir ef þurfa þykir
13. Fjárhagsáætlun fyrir næsta ár lögð fram
14. Laga- og reglugerðabreytingar lagðar fram
15. Aðrar tillögur lagðar fram
16. Nefndarstörf um framlagðar tillögur og önnur mál sem nefndir ákveða að taka fyrir.
17. Afgreiðsla á áliti nefnda
18. Önnur mál
19. Kosningar
     a. Kosning formanns
     b. Kosning tveggja stjórnarmanna
     c. Kosning þriggja manna í varastjórn
     d. Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga og tveggja til vara
     e. Kosning til íþróttaþings skv. lögum ÍSÍ á því ári sem íþróttaþing er haldið
      f. Kosning til þings UMFÍ skv. lögum UMFÍ á því ári sem þing þess er haldið
     g. Kosning þriggja manna uppstillingarnefndar
20. Þingslit