Auður Líf Benediktsdóttir
Auður Líf Benediktsdóttir
1 af 4

Úthlutað hefur verið styrkjum úr afrekssjóði HSV. Alls bárust 15 umsóknir frá þremur félögum. Stjórn afrekssjóðsins ákvað að gera styrktarsamninga til eins árs við fjóra einstaklinga um mánaðarlega styrki. Er það í fyrsta sinn sem slíkir samningar  eru gerðir. Helsta markmið með samningunum er að auka utanumhald og stefnumörkun á afrekssviði og jafnframt er sett er aukin áhersla á markmið og markvissan undirbúnig þeirra iðkenda sem stefna að því að komast í fremstu röð. Einnig voru veittir styrkir til 11 iðkenda samvæmt því ferli sem áður hefur verið úthlutað eftir hjá Afrekssjóðnum.

Valið var erfitt því árangur ungra íþróttamanna hér á svæðinu er góður og margir kallaðir til í landsliðshópa og úrtaksæfingar sinna sérsambanda. Það sýnir gott og skipulagt starf aðildarfélaga HSV og verður gaman að fylgjast með þessu efnilega íþróttafólki þroskast og dafna á næstunni.

Þeir íþróttamenn sem gerðir verða samningar við eru:

Albert Jónsson Skíðafélagi Ísfirðinga

Anna María Daníelsdóttir Skíðafélagi Ísfirðinga

Auður Líf Benediktsdóttir Vestra

Þórður Gunnar Hafþórsson Vestra

 

Þeir íþróttamenn sem fengu styrki eru:

Birkir Eydal Vestra

Dagur Benediktsson Skíðafélagi Ísfirðinga

Hafsteinn Sigurðsson Vestra

Himir Hallgrímsson Vestra

Hugi Hallgrímsson Vestra

Jakob Daníelsson Skíðafélagi Ísfirðinga

Kjartan Óli Kristinsson Vestra

Kolfinna Íris Rúnarsdóttir Skíðafélagi Ísfirðinga

Kristín Þorsteinsdóttir Ívar

Sigurður Arnar Hannesson Skíðafélag Ísfirðinga

Sólveig María Hallvarðsdóttir Aspelund Skíðafélagi Ísfirðinga