Íþróttamenn sem tilnefndir voru sem efnilegustu íþróttamenn Ísajfarðarbæjar 2014. Viktor er lengst til vinstri .
Íþróttamenn sem tilnefndir voru sem efnilegustu íþróttamenn Ísajfarðarbæjar 2014. Viktor er lengst til vinstri .

Viktor Júlíusson leikmaður BÍ/Bolungarvík var sunnudaginn 18. febrúar síðastliðinn útnefndur efnilegasti íþróttamaður Ísafjarðarbæjar árið 2014.

Viktor Júlíusson hefur æft knattspyrnu í 11 ár og ávallt leikið með BÍ/Bolungarvík. Viktor spilaði 8 leiki með meistaraflokki BÍ/Bolungarvík í 1.deild og einn bikarleik. Viktor var fastamaður í leikmanna- og æfingahópi U-17 ára landsliðs Íslands árið 2014, og spilaði samtals 5 landsleiki á árinu 2014. Viktor spilaði 3 landsleiki og skoraði eitt mark á æfingamóti UEFA á N-Írlandi í apríl. Viktor spilaði 2 landsleiki í undankeppni Evrópumóts U-17 í Moldóvu í október sl.

Viktor er heilbrigður og metnaðarfullur íþróttamaður, sem stundar íþrótt sína af miklu kappi. Viktor er góð fyrirmynd yngri iðkenda.