Stjórn fól formanni að uppfæra rekstraráætlun fyrir HSV og verður ákvörðun um ráðningu nýs framkvæmdarstjóra tekin í framhaldinu. Þangað til mun Jón Páll Hreinsson, formaður HSV gegna störfum framkvæmdarstjóra í nánu samvinnu við stjórn og yfirþjálfara Íþróttaskóla.
Nánari upplýsingar veitir Jón Páll í s.8994311 eða hsv@hsv.is.
Nánar
Héraðssamband Vestfirðinga auglýsir eftir umsóknum í styrktarsjóð þjálfara. Samkvæmt reglugerð sjóðsins er honum ætlað að auka þekkingu og færni þjálfara og með því móti auka gæði þjálfunar og efla íþróttastarf í sveitarfélaginu. Sjóðsstjórn er heimilt að úthluta styrkjum til aðila utan vébanda HSV, enda muni viðkomandi verkefni verða íþróttalífi og félögum í Ísafjarðarbæ til hagsbóta.
Umsóknarfrestur er til 15. október
2012
Vakin er sérstök áhersla á reglugerð sjóðssins sem finna má á heimasíðu HSV www.hsv.is . Þar undir „Um HSV“ . Þar koma fram frekari upplýsingar varðandi umsóknarferlið.
Frekari upplýsingar og spurninga um þjálfarasjóðinn sendist í tölvupósti: hsv@hsv.is
NánarHéraðssamband Vestfirðinga auglýsir eftir umsóknum í afreksmannasjóð sambandsins. Geta allir íþróttamenn sótt um styrk í sjóðinn svo framlega sem þeir séu aðilar innan HSV og uppfylli þau skilyrði sem eru í 7.grein laga afreksmannasjóðsins.
7. gr.
Stjórn sjóðsins getur veitt styrk ef viðkomandi uppfyllir eitthvert eftirtalinna skilyrða:
Ef hann keppir á eða hefur möguleika á þátttöku á Ólympíu-, Heims-, Evrópu- eða
Norðurlandameistaramótum.
Ef hann er valinn í landslið eða úrtök fyrir landslið. Ef hann er framarlega í íþróttagrein
sinni á landsvísu eða hefur sýnt mjög góðan árangur og er líklegur til að komast í hóp
bestu íþróttamanna landsins í íþróttagrein sinni. Skal þá miðað við styrkleikaflokkun
sérsambanda (sé hún til).
Lið eða hópur geta fengið úthlutað ef þau eru framarlega í íþróttagrein sinni á landsvísu
eða hafa sýnt mjög góðan árangur og eru líkleg til að komast í hóp bestu liða/hópa
Hægt er að sjá reglugerð sjóðsins inn á heimasíðu HSV.
Umsóknarfrestur er til 15. október 2012
Frekari upplýsingar og spurningar varðandi afreksíþróttasjóðinn sendist í tölvupóst: hsv@hsv.is
NánarMennta- og menningarmálaráðuneyti auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Íþróttasjóði sem starfar samkvæmt íþróttalögum nr. 64/1998, sbr. reglugerð nr. 803/2008. Veita má framlög til eftirfarandi verkefna á sviði íþrótta:
- Sérstakra verkefna á vegum íþróttafélaga og samtaka þeirra sem miða að því að bæta aðstöðu til íþróttaiðkana.
- Útbreiðslu- og fræðsluverkefna.
- Íþróttarannsókna.
- Verkefna samkvæmt 13. gr. íþróttalaga.
- Vakin er sérstök athygli á að umsækjendum er gert að sækja um á rafrænu formi.
- Eyðublöð má finna á https://minarsidur.stjr.is.
- Sækja þarf um aðgang að umsóknavef ráðuneytisins. Aðgengi er einungis gefið á kennitölur og er lykilorð sent til viðkomandi á netfang sem gefið er upp við nýskráningu.
- Lykilorðinu má breyta eftir innskráningu með því að opna Mínar stillingar.
- Umsækjendur skrá sig inn með kennitölu og lykilorði og velja mennta- og menningarmálaráðuneytið undir flipanum Umsóknir. Þar er umsóknareyðublað fyrir íþróttasjóð. Svæði merkt rauðri stjörnu verður að fylla út. Umsækjendur geta fylgst með afgreiðslu umsókna sinna með því að skrá sig inn á umsóknavefinn.
- Nánari upplýsingar veitir Valgerður Þórunn Bjarnadóttir í síma 545 9500 eða tölvupósti.
Umsóknarfrestur er til 1. október 2012.
Nánar